Sumarfríiđ búiđ og ný verkefni taka viđ
Það er ótrúlegt að hugsa til þess að vera að mæta í vinnu aftur eftir sumarfrí sem leikskólakennari. Ég var einmitt að hugsa þetta í dag en um leið glöð að vera búin með þennan áfanga og takast á við ný verkefni og komast aftur í rútínu.
Þó má ekki gleyma því að verkfall er í sjónmáli ef ekki semst við leikskólakennara en ég vona heitt og innilega að leikskólakennarar fá þessa leiðréttingu á sínum launum því þetta er ekki til að hvetja fólk að hefja nám því peningar hafa yfirleitt alltaf eitthvað að segja um hvort þig langi að læra þetta fag eður ei. Ég er ekki að tala um græðgi heldur um að fólk þarf víst að ná endum saman í hverjum mánuði og það verður ekki sagt að laun leikskólakennara nái því alltaf. Eins og ég segi þá vona ég að um semjist áður en verkfall hefst.
Oddur hefur verið að vinna hjá Sæferðum og líkar vel, ég og Elínbjört sjáum hann meira þetta sumarið en oft áður enda vinnutíminn annar en við áttum að venjast.
Svo það skemmtilegasta þetta sumarið sem ég bíð spennt eftir en það er ferðalagið sem ég ætla í ásamt mömmu, Snæbjörtu og Bergdísi en einnig koma Kristín frænka og Bergþóra með okkur til Torontó í Kanada. Við höfum verið að safna okkur fyrir ferðinni með því að skúra Baldur og því verður þetta ennþá skemmtilegra því maður hefur verið svo duglegur að safna hehe.
Svo verða dönsku dagarnir næstu helgi og ég á ekki von á neinum gestum í mitt kot nema þá rétt til að kíkja smá. Þetta verður bara gaman og mig hlakkar til að njóta næstu helgar í góðra vina hópi ( því Oddur er að vinna) og fá mér smá í litlu tánna

Sumariđ komiđ ?
Já það er spurning hvort sumarið sé komið en júní er alveg að klárast og júlí að taka við. Maður verður víst að átta sig á því að maður býr á Íslandi og veðrið í samræmi við það. Væri samt alveg til í að fá nokkra daga með logni og sól því útiverkin hlaðast upp hérna.
Það er ekki mikið að frétta hér á bæ en Oddur er hættur að vinna hjá Ragnari og Ásgeiri og farin að vinna hjá Sæferðum. Hann er að vinna á bátnum Særúnu og er aðstoðarmaður skipstjóra. Honum er ekki að leiðast þessi vinna og nýtur þess í botn að vera stundum búin að vinna kl 5 á daginn en þannig var það sjaldnast í útkeyrsluvinnunni. Svo verður bara að koma í ljós hvað hann tekur sér fyrir hendur í haust. Honum langar í nám og það er bara gott mál.
Ég kláraði háskólann og útskrifaðist 11 júní s.l. það er bæði gaman og skrýtið að vera ekki á leið í skóla í haust. Maður er loksins "orðin" eitthvað því nú get ég titlað mig sem leikskólakennara. Veit þó ekki hvort það sé sniðugt því launin eru víst ekkert til að hrópa húrra fyrir. Finnst þessi hækkun sem ég á von á til skammar en miðað við gömlu samninga félags leikskólakennara og nýju samninga Samflots þá næ ég að hækka í launum um 30 þúsund krónur. Er það þess virði að leggja á sig 3 ára háskólanám ( eða nám yfir höfuð) og ná 180 einingum fyrir 30 þúsund ? dæmi hver fyrir sig. Einnig var okkur nemendum tjáð að við gætum gengið inn í hvaða leikskóla sem væri og fengið vinnu en það er víst ekki svo einfalt í dag, sveitafélögin eru með kvóta hversu mörg prósent af starfsfólki sé með sérmenntun og hverjir séu ólærðir. Þetta er víst ekki hvetjandi en þar sem ég hafði fundið mitt framtíðarstarf þá hefur þetta sem betur fer ekki haft áhrif á mína ákvarðanatöku. Nú hefur námið verið lengt í 5 ár og ég vona að þessir ráðamenn sem semja fyrir sveitarfélögin taki það með í reikninginn.
Allavega þá byrja ég að vinna á deildinni Vík í ágúst og mig hlakkar bara til. Búin að vinna þar áður og þá var dóttir mín á sömu deild og ég. Hætti þar þegar ég fékk brjósklosið í bakið og skipti þá um deild. Núna er ég s.s. að fara aftur inná Vík að vinna með 1 - 2 ára börnum. Þetta verður spennandi verkefni því ég hef aldrei unnið með 1 árs börnum þó ég hafi leyst af þarna. Svo er spurningin hversu lengi ég verð á þessari deild hehe. Ég hef verið ansi dugleg við að fara á milli deilda og finnst æðislegt að fá tækifæri til að vinna með börnum á öllum aldri. En nóg um mig :0)
Elínbjört verður elsta barnið í leikskólanum næsta vetur að öllu óbreyttu. Litla barnið mitt er s.s. að fara í leikskólann og á bara 1 ár eftir. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða en um leið gaman að fylgjast með barninu sínu þroskast og dafna. Litla klára barnið mitt er farið að skrifa nafnið sitt með stakri prýði en spurði mig hvort mitt nafn væri jafnlangt og hennar (hennar nafn er 9 stafir og mitt 8) og þá mundi ég hvað ég blótaði mömmu og pabba fyrir að skíra mig svona löngu nafni, sérstaklega þegar átti að skrifa allt nafnið sitt (SÓLBJÖRT SIGRÍÐUR) það tók heila eilífð að skrifa þessa 16 stafi. Svo geri ég það sama við barnið mitt og skíri hana tvemur fallegum nöfnum (ELÍNBJÖRT KRISTÍN) en núna vona ég að hún blóti mér ekki mikið hehe.
Þá held ég að fréttir af heimilinu séu komnar og nöldur dagsins búið.
Kv Sólbjört Leikskólakennari
Ýmislegt ađ gerast
Hæ hæ
Já það er nóg að gera á þessu heimili, skólalok (vonandi) og þá tóku við almennileg þrif á húsinu enda veitti hreinlega ekki af þar sem yfirborðsþrif voru mjög vinsæl á þessu heimili vegna tímaleysis en þetta er allt að koma. Einnig hafa önnur verkefni hrannast upp sem þarf að klára og því um að gera að vera duglegur við að vinna upp það sem ég ætlaði að gera eftir að skólanum lyki. Ég á eftir að fá út úr einum áfanga og þá 1 verkefni og svo prófi en eftir mínum útreikningum er ég búin að ná þessum áfanga en þori ekki að fagna fyrr en það er endanlega staðfest og það gerist vonandi á morgun. Einnig sá ég áðan að ég komst ekki inn í framhaldsnámið sem ég sótti um og það kemur svo sem ekkert á óvart en það hefði samt verið gaman að komast inn í námið. Maður prófaði allavega að sækja um hehe. Dóttir mín verður ábyggilega voða ánægð að mamma sín skuli ætla að nýta tímann í eitthvað annað en bækur og tölvunotkun.
Sumarið ætti að vera komið en veðrið er ekki á því og við hér í Hólminum fáum að njóta þess að hafa rok, snjókomu og frost, geggjað alveg. En ég vona nú að þetta veðurfar fari að taka enda svo hægt verði að vinna einhverja útivinnu því bæði húsið og garðurinn mega við smá viðhaldi. Þannig er það nú bara.
Það verður skemmtileg breyting á næstu dögum þegar ég útskrifast og get farið að kalla mig leikskólakennara en það er eitthvað sem ég bjóst ekki við þegar ég sótti um í leikskólanum árið 2000. Ég ætlaði einungis að vinna þarna þangað til ég fyndi eitthvað annað og betra. Ég ætlaði að fara í ferðamálatengt nám en örlögin gripu heldur betur í taumana og ég fór í háskólanám þó var ég ekki búin með stúdentinn. Yndislegar konur sem unnu/vinna með mér og yndisleg börn, ég hélt að ég hefði ekki þolinmæði í að vinna með börnum en í dag finnst mér þetta ótrúlega gaman og vona að börnunum finnist það líka.
Ég fór í haust að fylgjast með frænda mínum á danssýningu en leist svo ekkert á blikuna þegar ég hafði "passað" börn frá 1 - 10 bekk enda fannst mér ég ekki búin að vinna svo lengi í leikskóla en það sýnir kannski fram á að ég er á nokkuð réttri hillu í lífinu. Vona það.
En útskrift á næsta leiti og svo verður sumarið bara skemmtilegt þó ferðalögin verði kannski ekki mörg en þau verða skemmtileg.
Kv Sólbjört næstum útskrifaða
Langur tími frá seinustu fćrslu
Hæ hæ
Langt síðan maður skrifaði seinast, svo langt að ég man ekki hvað var í síðustu færslu. Allavega þá hef ég vonandi lokið náminu til B.Ed. gráðu í leikskólakennarafræðum. Það hefur verið ómæld vinna en um leið ótrúlega gaman, kynnst nýju fólki og skemmtilegt nám þó maður hafi ekki haft tök á að rækta vinasambönd við gamla vini á meðan.
Leiðin liggur þó bara uppá við núna og á stefnuskránni er að hitta fleiri og gefa sér tíma fyrir stelpuna.
Elsku barnið mitt er orðið 5 ára, hún var 2 ára þegar ég byrjaði í náminu og þekkir því lítið annað en mömmu sem er með kassótt augu af því að horfa á skjáinn á tölvunni og þegar hún fór að hafa meira vit bað hún mömmu sína oftar en ekki að geyma tölvuna og tala við sig. Þetta gat sko tekið á taugarnar að hafa ekki meiri tíma með henni en við reyndum þó að nýta frítíma vel. Hún er allavega í skýjunum yfir því að námið sé búið.
Nú skal beðið eftir einkunnum svo maður geti alveg örugglega útskrifast en kennarar eru ótrúlega lengi að skila inn einkunnum fyrir verkefni sem löngu er búið að skila og því bætast bara við fleiri og fleiri grá hár. Vonast þó eftir að einkunnir fari að skila sér.
Nú tekur hversdagsleikinn við og ég ætla mér að blogga hér nokkuð reglulega fyrst ég hef tíma og kannski einhver nenni að lesa þetta en þó veit maður ekki þar sem leikirnir á fésinu geta tekið ómældan tíma frá manni.
Læt þetta duga í bili
Kv Sólbjört næstum útskrifaða
Lćra lćra og lćra meira
Jæja þá er nóg komið af lærdóm í kvöld. Ég fékk læri í kvöldmatinn a la mamma og það var ekkert smá gott. Amma og afi komu í heimsókn og afi fór í jólasveinabúning og lék fyrir krakkana (fyrir utan Katrínu) og þau fengu ávexti og nammi, þau voru hrædd fyrst en svo fóru þau að spjalla við hann hin ánægðustu. Ekki leiðinlegt að fá heimsókn frá jólasveininum.
Dóttir mín sefur í nótt hjá Júlíusi frænda en ég á að sækja hana þangað bara ekki alveg strax. Það er nú best að sækja hana á morgun svo hún flytji ekki bara að heiman.
En ætla að blogga betur þegar ég er komin í jólafrí sem er ekki á morgun heldur hinn. Þá er ég hálfnuð.
Bæjó spæjó
Jólin jólin jólin koma brátt
Ég hef stundum verið að hugsa um hvernig lífið hjá manni verður eftir áramót en það á allt að hækka held ég nema launin og þá er eins gott að borða bara 3x í viku og hætta að keyra í búðina til að kaupa í matinn ( set bara hundana fyrir framan kerru og læt þá draga matvöruna heim). Eins gott að eiga engin áhugamál sem kosta peninga og reyna svo að eignast peningatré þó svo það vaxi ekki nema eina krónur á því tréi, króna er sko króna. Er ekki megrun inn í dag ? Eins gott að fara bara í þann pakka.
Stjórnmálamennirnir eru að ganga af mér dauðri með leiðindum og spjalli í Alþingi sem mér finnst ekki skipta höfuðmáli. Stjórnarandstaðan er í raun sú stjórn sem kom okkur í þetta kreppubull og ég fæ hroll þegar þeir eru að tala um hvað stjórnarmeirihluti er að gera okkur til miska í dag. Samt finnst mér stjórnameirihlutinn ekki vera að standa sig. Þetta er orðið eitt stórt bullfyrirtæki þetta Alþingi. Mér svíður það líka að á meðan við eigum að fara að borga þetta Icesave þá spranga allir millarnir sem komu landinu í þrot einhversstaðar í útlöndum með peningana sem hægt væri að nota til að borga upp eða uppí Icesave. En það má ekki snerta þessa háu herra. Fólk hefur ekkert til að bjarga sér og bankarnir hafa skellt í lás. Að breyta nafni á bönkunum gerir þá ekkert meira aðlaðandi allavega ekki fyrir mig. Sama fólkið sem vinnur í bönkunum og sami skíturinn sem viðgengst.
Jæja ætla að hætta að vera svo neikvæð og halda áfram að læra.
kv Sólbjört
Kreppan
Maður er á lífi og reynir að blogga eitthvað.
Maður er á fullu í skólanum og reynir að samræma lærdóm, vinnu og heimilishald. Það gengur ágætlega eins og er og ég vona að það haldi bara þannig áfram. Elínbjört er rosalega dugleg og mér finnst henni fara vel fram, hún fór í þriggja og hálfsársskoðun og kom vel út þar. Eina sem var að er að hún er smámælt en vona nú að það lagist þegar hún eldist meira.
Ég kemst ekki hjá því eins og fleiri hér á Íslandi að heyra fréttir af kreppunni og manni líst nú ekkert á blikuna. Fjárhæðirnar sem talað er um er eitthvað sem ég á aldrei eftir að ná að vinna mér inn þó svo ég safnaði alla ævi. Samt er maður í skóla til að reyna að fá aðeins hærri laun. Ég vona bara að þessi blessaða flokkapólitík geri mönnum kleift að fara eftir sinni sannfæringu og að hugsað verði um fólkið í landinu frekar en að líta vel út á við. Ég verð fyrir miklum vonbrigðum með þessa blessuðu þingmenn þegar þeir fylgja einhverri flokkspólitík frekar en að fara eftir sinni skoðun því hann/ hún þorir ekki vera á móti neinum, kannski til að hinir fari ekki í fýlu. Skil ekki hvernig óbreyttir þingmenn fá engu ráðið því ráðherrar segja hvort þeir eigi að segja já eða nei. Vona allavega að þetta breytist en er ekki bjartsýn á það.
Launin og launakjör hins almenna Íslendings er ekki spennandi eins og staðan er núna. Vilhjálmur vill bara álver og aðeins fleiri álver til að laun geti hækkað en mig langar að vita hvort ekki sé hægt að gera eitthvað annað sem skemmir ekki náttúruna eins mikið. Það er of mikið einblínt á stóriðju og gleymist að horfa á aðra atvinnuvegi sem hægt væri að nýta betur. Landbúnaður á erfitt núna en gæti blómstrað ef hann fengi hjálp. Ekki gæti ég þó mig langi mikið til þess keypt mér sveitabæ og hafið bústörf því elskulegu útrásarvíkingarnir eiga alla bæi sem eru ekki upp á öræfum og mig langar ekki að eiga heima þar. Vonandi breytist þetta einhverntímann líka.
En ég ætla að hætta þessum blessaða pistli hér áður en ég geri einhvern alveg brjálaðan á fávisku minni. En ég læt Jóhönnu eða Steingrím ekki segja mér hvað ég má og hvað ég má ekki.
Góðar stundir allir saman
Júnífćrslan
Það er langt síðan ég bloggaði síðast svo maður er orðin eins og leiðinlegur bloggararnir sem nenna ekki að blogga og maður nennir ekki að kíkja á síðurnar. Vonandi lagast það hjá mér !!!
Það styttist í sumarfrí hjá mér og Elínbjörtu og það verður bara næs. Oddur er að fara á vélarvarðanámskeið á morgun og verður á námskeiði í viku. Eins gott að sækja sér menntun þegar hún býðst. Ég er aftur á móti í fríi frá skólanum og það er líka notalegt. Ég ætlaði varla að trúa því þegar ég var búin að ná öllu á vorönninni að eitt ár af þremur væri búið, en það var sko ekki leiðinlegt og ég fattaði það líka að ég á bara eina önn í að vera hálfnuð með námið og það var ekki verra að fatta það. Er svo fegin að vera búin með aðferðafræðina að mér var eiginlega sama um allt hitt. En þetta tekur s.s enda.
Elínbjört er bara 3 ára frekja og lætur alveg heyra í sér! ef maður ætlar að segja henni eitthvað þá segir hún bara "ég veit mamma" og þar sem er málið útrætt. Hún er komin með nýja barnapíu og henni finnst ekki leiðinlegt að fara með henni og það er meira að segja svo að hún vill ekki koma heim. Það er kannksi ekki eins gott en samt gott að henni leiðist ekki að leika sér við aðra en mig.
Ég ætla að fara í minni vinnu í haust og reyna kannski að fá betri einkunnir. Ekki að ég sé ósátt við þær sem ég hef fengið en maður getur alltaf gert betur. Svo fer ég í nýja stöðu á leikskólanum og það verður spennandi að breyta til. Mig hlakkar bara til.
Ég er á fullu að prjóna núna og æfa mig á gítar svo ég verði flott á því að spila á gítar í nýja kjólnum :0) allt planað.
Læt þetta duga í bili
Kv Sólbjört
Sumarfrí frá skólanum
Já það er sko komið sumarfrí í skólanum. Ég vona að það verði í allt sumar en endurtektarprófin eru um miðjan júní svo ég vona bara að þetta hafi náðst og ég þurfi ekki að vera að lesa í sumar.
Það verður nóg að gera í sumar hjá manni og þá helst í kringum húsið en ég ætla að klára að mála það í sumar en það tekur langan tíma vegna þess að maður þarf að handmála með litlum pensli og trúið mér það er búið að prófa allt annað.
Það verður grafinn upp garðurinn og vonandi sett nokkur tré. Settur smá pallur og hundagirðing. Einnig verður sett upp girðing ef Oddur minn nær einhvern tímann í girðingu sem við eigum en þurfum að ná í. Það er sem sagt nóg að gera fyrir utan öll ættarmótin og ferðalögin sem við erum að plana og svo árleg ferð útí Flatey og við verðum í nýju húsi þar og bara gaman að prófa eitthvað nýtt.
Ég fer svo í minni vinnu í haust þar sem maður var alltaf að og Elínbjört farin að biðja mig um að mæta ekki í fleiri próf. En allavega þá er maður komin í FRÍ
Heyri í ykkur seinna
Bless
Til umhugsunar
(eða vorum við bara heppin??)
Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn
á 5., 6., 7. og 8. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.
HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?
-Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.
-Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við
hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.
-Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.
-Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.
-Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu
í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika
-Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni
án þess að nokkur létist.
-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum
á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt
bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.
-Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og
komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir
daginn.
-Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar
talstöðvar sem var flott að eiga!
-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki
fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki
heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.
-Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.
-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn
var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að
kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?
-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.
-Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli
og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg
augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og
margir gáfust upp á fyrsta njólanum!
-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og
létum eins og heima hjá okkur.
-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu,
eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar
aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.
-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við
stjórnuðum okkur sjálf.
-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk.
Hræðilegt.... En þeir lifðu af.
-Engin vissi hvað Rítalín var og engin bruddi pillur sem barn.
-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í
Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.
-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.
-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í
því...
OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!
Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum
frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt
saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og
reglur um líf okkar sem þeir segja að sé 'okkur sjálfum fyrir bestu'?.Þessi
kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að leysa
vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.
